Jólasveinabúningar.is
- fyrir alvöru jólasveina -
Gleðilega hátíð
...kæru jólasveinar
Elma
Mamma Grýla sagði við okkur bræður að nú væri hún búin að finna snilldar klæðskera handa okkur til að endurnýja og viðhalda búningum okkar því hún hefur ákveðið að setjast í helgan stein og þá bókstaflega.
Hún hafði heyrt um dömu að nafni Elma Bjarney Guðmundsdóttir sem er staðsett með vinnustofu í Kópavogi.
Daman væri fyrst fyndin og svo skemmtileg, nýtin, útsjónarsöm og vel litagreind sem við bræður þurfum hjálp við.
Hún væri menntuð sem dömuklæðskeri frá EUC-syd í Sönderborg í Danmörku og hefði starfað við búningagerð á Íslandi síðastliðin 22 ár í leikhúsi, kvikmyndum og við ýmsar tónleika uppfærslur.
Meiri snilling þurftum við nú ekki.....
Það lang skemmtilegasta sem hún gerir er spá í karakter sköpun, spuglera í búningum og sögum og hvernig er hægt að tengja það saman svo úr verði ein heild. Þarna vorum við bræður að tengja.
Úr varð samstarf sem hefur ennþá gengið vonum framar og komið til að vera.
Framtíð jólasveina á Íslandi er björt.